Tottenham vill Trafford - Maguire hafnaði Inter Miami - Liverpool og Newcastle fylgjast með ítölskum varnarmanni
   mið 08. apríl 2026 18:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Glasner: Olise getur gert enn betur
Mynd: EPA
Michael Olise hefur verið frábær fyrir Bayerrn síðan hann gekk til liðs við félagið frá Crystal Palace sumarið 2024.

Hann hefur komið við sögu í 40 leikjum í öllum keppnum og skorað 16 mörk og lagt upp 34 til viðbótar. Þar af hefur hann skorað þrjú mörk og lagt upp sjö í Meistaradeildinni.

Hann lagði upp seinna mark Bayern á Harry Kane í 2-1 sigri á Real Madrid í gær. Oliver Glasner, stjóri Crystal Palace, hrósaði honum í hástert í dag.

„Ég er ekki hissa, maður sá þetta frá fyrsta degi," sagði Glasner.

„Hann var meiddur þegar ég kom en hann hafði gríðarlega mikil áhrif á leikinn okkar þegar hann var heill heilsu, hann var ennþá 22 ára þá. Ég horfði á leikinn gegn Real Madrid, það var frábær leikur og hann var stókotlegur. Þetta er ekki þakið, hann getur gert enn betur."
Slapp
banner
banner
banner