Hörð barátta um Rogers - Juventus vill Alisonn - Olise orðaður við Real
   fös 10. apríl 2026 08:30
Ívan Guðjón Baldursson
Maguire: Getum barist um úrvalsdeildartitilinn
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Mynd: EPA
33 ára gamall Harry Maguire framlengdi samning sinn við Manchester United um eitt ár á dögunum og svaraði ýmsum spurningum í kjölfarið.

Maguire er gríðarlega spenntur fyrir framtíð félagsins og vonast til að vinna titla á næstu leiktíð.

„Við erum búnir að eiga frábæra mánuði með nýja þjálfaranum og mér líður eins og við séum loksins byrjaðir að líta út fyrir að vera sterkt lið. Næsta sumar verður mjög stórt í þessum efnum, við þurfum fleiri leikmenn sem geta stigið inn í byrjunarliðið og veitt alvöru samkeppni," sagði Maguire.

„Mér líður eins og ef við kaupum rétta leikmenn í sumar þá getum við barist um titilinn strax á næstu leiktíð. Við erum með frábæra einstaklinga innanborðs sem eru hungraðir í að vinna titla. Við erum mjög nálægt því að hafa gæðin sem þarf til að vinna stóru titlana."

Man Utd er að gera flotta hluti á tímabilinu og situr í þriðja sæti ensku úrvalsdeildarinnar sem stendur. Rauðu djöflarnir eru í frábærri stöðu í meistaradeildarbaráttunni.

„Við keyptum inn frábæra leikmenn síðasta sumar og vonandi tekst félaginu að endurtaka leikinn núna. Við þurfum fleiri leikmenn og betri gæði. Við verðum að breikka hópinn.

„Þetta er risastórt félag og það er oft erfitt fyrir nýja leikmenn að aðlagast pressunni."


United eyddi fúlgum fjárs til að kaupa Matheus Cunha, Bryan Mbeumo, Benjamin Sesko og Senne Lammens síðasta sumar.

Félagið getur þó ekki keypt endalaust af nýjum leikmönnum án þess að selja vegna fjármálareglna ensku úrvalsdeildarinnar.

Michael Carrick er bráðabirgðaþjálfari Man Utd út tímabilið og vonast hann til að vera fastráðinn í sumar. Stjórnendur United eru þó einnig með augastað á þjálfurum á borð við Oliver Glasner og Xabi Alonso.

   09.04.2026 14:04
Maguire: Ekki fyrir hvern sem er að spila fyrir Man Utd

Slapp
banner
banner