Tottenham vill Trafford - Maguire hafnaði Inter Miami - Liverpool og Newcastle fylgjast með ítölskum varnarmanni
   mið 08. apríl 2026 10:00
Brynjar Ingi Erluson
„Hann er besti markvörður heims“
David Raya læsti búrinu
David Raya læsti búrinu
Mynd: EPA
Havertz skoraði sigurmarkið
Havertz skoraði sigurmarkið
Mynd: EPA
Kai Havertz, hetja Arsenal gegn Bayern München, hrósaði David Raya eftir frammistöðuna í 1-0 sigrinum á Sporting í gær.

Raya var traustur á milli stanganna hjá Arsenal og var valinn bestur á helstu miðlum og af UEFA.

Havertz þakkaði honum síðan fyrir vörslurnar með því að gera sigurmarkið í uppbótartíma.

„Það er alltaf góð tilfinning að skora seint sigurmark og sérstaklega fyrir framan stuðningsmennina. Við tökum þessum úrslitum, en það er samt mikil vinna framundan fyrir leikinn í næstu viku.“

„Þetta var opinn leikur en mér fannst við stjórna honum ágætlega. Fótbolti snýst samt um augnablik eins og þessi. Þegar á heildina er litið spiluðum við góðan leik og getum verið stoltir af okkur. Núna náum við endurheimt og keyrum aftur á þetta á laugardag,“
sagði Havertz.

Arsenal hefur tapað tveimur leikjum í röð. Það tapaði gegn Manchester City í úrslitum deildabikarsins og datt síðan úr leik í 8-liða úrslitum bikarsins gegn Southampton. Havertz segir því sigurinn í gær hafa verið ótrúlega mikilvægan.

„Þetta er alveg klárlega stór viðsnúningur hjá okkur eftir að hafa tapað síðustu tveimur leikjum. Við létum verkin tala og náðum að koma okkur aftur á sigurbraut. Við stöndum saman og eigum svo mikið inni. Það eru sjö vikur eftir þar sem við getum unnið stóra titla og við munum reyna við það.“

Hann hrósaði þá Raya sérstaklega eftir leikinn og gekk svo langt að kalla hann besta markvörð heims.

„Ótrúlegur. Mér finnst hann enn vera vanmetinn í heiminum, en fyrir mér hefur hann verið besti markvörður heims síðustu tvö tímabil. Hann er stórkostlegur og komið okkur svo oft til bjargar þannig við erum bara ánægðir að hafa hann hér,“ sagði Havertz um liðsfélaga sinn.
Slapp
banner