Stórlið berjast um Gvardiol - Gomes til Atlético - Enrique framlengir við PSG
   fös 10. apríl 2026 16:00
Elvar Geir Magnússon
Guardiola: Væri til í að Bernardo Silva myndi klára ferilinn hér
Bernardo Silva og Pep Guardiola.
Bernardo Silva og Pep Guardiola.
Mynd: EPA
Pep Guardiola segist ekki vita hvort Bernardo Silva sé búinn að taka endanlega ákvörðun um að yfirgefa Manchester City í sumar. Pep Lijnders, aðstoðarstjóri City, ýjaði sterklega að því á dögunum að þetta yrði síðasta tímabil Portúgalans hjá félaginu.

„Ég er svo fúll út í Bernardo! Ég sagði við hann fyrir mánuði að hann þyrfti að láta mig vita fyrstan en hann hefur ekkert sagt mér. Ég veit ekki hvort hann sé búinn að taka ákvörðun," segir Guardiola.

„Allir sem hafa þjálfað hann tala um hversu mikið þeir elska hann því það er ákveðinn eldur í honum, hann er svakalegur keppnismaður. Á stærstu stundunum á stærsta sviðinu er hann alltaf mættur."

„Hann hefur verið okkur magnaður liðsmaður. Ég elska þetta félag og ég myndi elska það ef hann gæti verið hér og klárað ferilinn hér. En það er hann sem ákveður, þetta er hans ákvörðun."

Manchester City heimsækir Chelsea á sunnudaginn. Varnarmennirnir Rúben Dias og Josko Gvardiol eru enn á meiðslalistanum en Mateo Kovacic er leikfær.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 35 23 7 5 67 26 +41 76
2 Man City 35 22 8 5 72 32 +40 74
3 Man Utd 36 18 11 7 63 48 +15 65
4 Liverpool 36 17 8 11 60 48 +12 59
5 Aston Villa 35 17 7 11 48 44 +4 58
6 Bournemouth 36 13 16 7 56 52 +4 55
7 Brighton 36 14 11 11 52 42 +10 53
8 Brentford 36 14 9 13 52 49 +3 51
9 Chelsea 36 13 10 13 55 49 +6 49
10 Everton 35 13 9 13 44 44 0 48
11 Fulham 36 14 6 16 44 50 -6 48
12 Sunderland 36 12 12 12 37 46 -9 48
13 Newcastle 35 13 6 16 49 51 -2 45
14 Leeds 35 10 13 12 47 52 -5 43
15 Crystal Palace 34 11 10 13 36 42 -6 43
16 Nott. Forest 35 11 9 15 44 46 -2 42
17 Tottenham 35 9 10 16 45 54 -9 37
18 West Ham 35 9 9 17 42 61 -19 36
19 Burnley 35 4 8 23 35 71 -36 20
20 Wolves 36 3 9 24 25 66 -41 18
Slapp
banner