Hörð barátta um Rogers - Juventus vill Alisonn - Olise orðaður við Real
   fös 10. apríl 2026 08:40
Ívan Guðjón Baldursson
Sjáðu Evrópumörkin: Frakkland, Ítalía og Spánn
Mynd: EPA
Það var nóg um að vera í helstu deildum Evrópu um síðustu helgi og sýndi Livey beint frá leikjum úr frönsku, ítölsku og spænsku deildunum.

Í franska boltanum sáum við 25 mörk í 9 leikjum og skoraði Hákon Arnar Haraldsson í flottum sigri Lille gegn titilbaráttuliði Lens. Sigur Lille hefur svo gott sem gert út um allar vonir Lens í titilbaráttunni.

Á Ítalíu fékk Albert Guðmundsson að líta rauða spjaldið í naumum sigri Fiorentina í mikilvægum fallbaráttuslag í Veróna. Þar voru þó aðeins 23 mörk skoruð í 10 leikjum, aðallega þökk sé 5-2 sigri Inter gegn Roma.

Að lokum voru 22 mörk skoruð í 10 leikjum á Spáni, en Orri Steinn Óskarsson komst ekki á blað. Hann fékk aðeins að spila síðustu mínúturnar í 2-0 sigri gegn Levante.

Frönsku mörkin


Ítölsku mörkin


Spænsku mörkin


Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Slapp
banner