Tottenham vill Trafford - Maguire hafnaði Inter Miami - Liverpool og Newcastle fylgjast með ítölskum varnarmanni
   mið 08. apríl 2026 12:30
Elvar Geir Magnússon
Forsetaframbjóðendurnir vilja Conte
Antonio Conte.
Antonio Conte.
Mynd: EPA
Þeir Giovanni Malagò og Giancarlo Abete vilja báðir að Antonio Conte taki við ítalska landsliðinu en búist er við því að þeir bjóði sig fram til forseta ítalska fótboltasambandsins á komandi ársþingi.

Conte er samningsbundinn Napoli til sumarsins 2027 en ef hann óskar eftir því að losna til að taka við landsliðinu mun félagið samþykkja það.

Bleika blaðið, La Gazzetta dello Sport, segir frá þessu en kosningarnar verða 22. júní í sumar. Búist er við því að bráðabirgðaþjálfari stýri ítalska landsliðinu í tveimur landsleikjum sem fram fara fyrr í þeim mánuði.

Enginn hefur formlega lýst yfir framboði til forseta en þekkt nöfn á borð við Paolo Maldini, Alessandro Del Piero og Demetrio Albertini hafa verið orðið við framboð.

Gennaro Gattuso hætti með ítalska landsliðið eftir að það tapaði gegn Bosníu í umspilinu. Ítalía situr heima þriðja heimsmeistaramótið í röð.


Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Slapp
banner
banner