Tottenham vill Trafford - Maguire hafnaði Inter Miami - Liverpool og Newcastle fylgjast með ítölskum varnarmanni
   mið 08. apríl 2026 13:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Staðfestir áhugann á Sancho
Mynd: EPA
Lars Ricken, yfirmaður hjá Dortmund, hefur staðfest að félagið sé að íhuga að bjóða Jadon Sancho samning.

Sancho verður samningslaus í sumar þegar samningur hans við Manchester United rennur út. United getur framlengt samninginn um ár til viðbótar en ekki er búist við því að enska félagið geri það. Sancho er á láni hjá Aston Villa út þetta tímabil.

Sky í Þýskalandi sagði frá því í síðasta mánuði að ráðamenn hjá Dortmund væru að ræða um möguleikann á því að fá Sancho aftur til félagsins. Sancho var keyptur til United frá Dortmund sumarið 2021 og var svo hálft tímabil á láni hjá þýska félaginu.

„Við erum að skoða marga leikmenn og rýna vel í þá. Við skoðum hvort þeir geti gert okkur betri. Við erum líka að gera það með Jadon," sagði Ricken.

Sancho er 26 ára enskur kantmaður sem náði ekki að blómstra hjá United eftir að hafa verið keyptur á 73 milljónir punda frá Dortmund.
Slapp
banner
banner
banner