Dagana 14. til 17. júlí verður Benfica skólinn haldinn á Vivaldivellinum á Seltjarnarnesi í samstarfi við Gróttu. Um er að ræða fjögurra daga námskeið undir stjórn þjálfara frá portúgalska stóveldinu Benfica.
Æfingar eru skipulagðar eftir hugmyndafræði Benfica en akademía félagsins er talin ein sú besta í heimi. Kvennalið Benfica hefur orðið portúgalskur meistari síðustu fimm leiktíðir og karlaliðið er það sigursælasta í sögu landsins.
Helstu upplýsingar:
Verð 29.500 kr
Skráning í gegnum Abler
Ein 90 mínútna æfing á dag í fjóra daga
Bolur, stuttbuxur og sokkar fylgja með í verðinu
Skráning opin fyrir krakka f. 2012-2016 úr öllum félögum
Skráning hér:
Smelltu hér til að skrá þig!Nánari upplýsingar: [email protected]




