Luis Díaz segir að hann hafi tekið rétta ákvörðun þegar hann fór til Bayern München síðasta sumar frá Liverpool. Kólumbíumaðurinn hefur verið frábær fyrir Bæjara eftir að hafa verið keyptur á 75 milljónir evra. Hann hefur skorað 23 mörk og lagt upp 18 í 40 leikjum.
Díaz skoraði fyrra mark Bayern í 1-2 útisigrinum á Real Madrid á þriðjudagskvöld. Hann veitti ESPN viðtal eftir leikinn.
Díaz skoraði fyrra mark Bayern í 1-2 útisigrinum á Real Madrid á þriðjudagskvöld. Hann veitti ESPN viðtal eftir leikinn.
„Að fara til Bayern var rétt ákvörðun. Ég er mjög ánægður og ég nýt þess að spila alla leiki."
„Mér líður frábærlega, ég er í góðu formi og þannig er ég tilbúinn að hjálpa liðinu."
„Við erum með skýrt plan, hópurinn er þéttur og það sést á vellinum."
„Við vorum búnir að rýna í Real Madrid og aðdragandinn að fyrra markinu var eins og við teiknuðum það upp. Okkur leið svo betur þegar leið á leikinn, unnum boltann oftar og stýrðum leiknum betur. Það er það sem við viljum gera það."
„Við erum mjög ánægðir en samt smá vonsviknir að hafa bara náð að skora tvö mörk. Við áttum mjög góðan leik gegn mjög erfiðu liði," sagði Díaz. Seinni leikur liðanna fer fram á Allianz Arena næsta miðvikudag.

