Tottenham vill Trafford - Maguire hafnaði Inter Miami - Liverpool og Newcastle fylgjast með ítölskum varnarmanni
   fim 09. apríl 2026 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Lengjubikar kvenna: Afturelding í úrslit
Kvenaboltinn
Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson
Afturelding 1-1 Fjölnir (6-5 í vítaspyrnukeppni)
1-0 Katla Ragnheiður Jónsdóttir ('43 )
1-1 Hrafnhildur Árnadóttir ('84 , víti)

Afturelding er komið í úrslit í C-deild Lengjubikars kvenna eftir sigur á Fjölni í vítaspyrnukeppni.

Katla Ragnheiður Jónsdóttir kom Aftureldingu yfir undir lok fyrri hálfleiks en Hrafnhildur Árnadóttir jafnaði metin fyrir Fjölni með marki úr vítaspyrnu á loka andartökum leiksins.

Afturelding vann að lokum 6-5 í vítaspyrnukeppninni.

Liðið mætir Fylki í úrslitum á laugardaginn en Fylkir rúllaði yfir ÍR 8-0 í hinum undanúrslitaleiknum.
Slapp
banner