Arsenal vill fá unga spænska varnarmenn, Dortmund hefur áhuga á Sancho og Tottenham vill markvörð City. BBC tók saman það helsta sem er til umræðu í slúðrinu.
Arsenal hyggst styrkja varnarúrval sitt í sumar og meðal nafna á blaði er spænski varnarmaðurinn Victor Valdepenas (19) hjá Real Madrid og spænski miðvörðurinn Jacobo Ramon (21) hjá Como. (Caughtoffside)
Borussia Dortmund íhugar að sækja enska kantmanninn Jadon Sancho (26) í þriðja sinn. Sancho er á láni hjá Aston Villa og mun væntanlega yfirgefa Manchester United á frjálsri sölu í sumar. (Telegraph)
Tottenham hefur áhuga á að fá enska markvörðinn James Trafford (23) frá Manchester City í sumar. Tottenham býr sig undir annasaman sumarglugga. (Teamtalk)
Nottingham Forest býst við því að enski landsliðsmiðjumaðurinn Elliot Anderson (23) fari annað hvort til Manchester United eða Manchester City ef hann fer í sumar. Forest vill fá 100-120 milljónir punda fyrir hann. (Florian Plettenberg)
Ekki er búist við því að Everton nýti sér 50 milljóna punda ákvæði til að kaupa Jack Grealish (30) frá Manchester City en telur sig geta náð nýju samkomulagi til að fá hann. (Athletic)
Manchester City er meðal fjölmargra félaga sem vilja fá Kennet Eichhorn (16), þýskan miðjumann Herthu Berlín. Þýsk og ensk félög vilja fá hann. (Fabrizio Romano)
Brasilíski kantmaðurinn Gabriel Martinelli (24) vill vera áfram hjá Arsenal þrátt fyrir að félagið hafi ýjað að því að hann gæti verið seldur í sumar. (Football Insider)
Leeds United er tilbúið að hleypa spænska framherjanum Mateo Joseph (22) frá félaginu í sumar en hann er á láni hjá Mallorca.(Football Insider)
Chelsea hefur engar áætlanir um að selja enska varnarmanninn Josh Acheampong (19) í sumar þrátt fyrir takmarkaðan spiltíma hans fyrir bláliða. (Express)
Eduardo Coudet, stjóri River Plate, hefur sett sig persónulega í samband við argentínska vængmanninn Alejandro Garnacho (21) og hefur áhuga á að fá hann lánaðan. (TyC)




