Davíð Þór fyrirliði FH var sáttur við stigin þrjú sem liðið fékk á Kópavogsvelli í kvöld.
"Ég er hrikalega sáttur, við byrjuðum leikinn af krafti og skoruðum mark, hefðum kannski getað gert annað stuttu eftir það".
"Ég er hrikalega sáttur, við byrjuðum leikinn af krafti og skoruðum mark, hefðum kannski getað gert annað stuttu eftir það".
Fréttaritari fótbolta.net valdi Davíð mann leiksins en eiginlega allar sóknarlotur Blika stoppuðu hjá honum leikinn út, var þetta ekki leikur sem hann elskar með actionið og atið í kringum hann?
"Tómas spurði mig líka hvort að þessir leikir hentuðu mér best þegar er svona barátta og læti þarna á miðjunni, þið hafið greinilega enga trú á mér sem knattspyrnumanni - sagði Davíð og hló. neinei þetta var bara flottur leikur"
Blikar fengu mikinn tíma á boltann í kvöld og FH lá frekar aftarlega, var það uppálagt eða bara þróun leiksins?
"Við ætluðum ekkert að hápressa þá, ætluðum að leyfa þeim að halda boltanum á þeirra þriðjungi en það komu þarna kaflar í seinni hálfleik þar sem við féllum of aftarlega en varnarlínan hélt vel í kvöld."
FH munu sitja efstir í EM-pásunni með 14 stig, er það í samræmi við væntingar?
"Deildin er mjög jöfn og við erum mjög ánægðir með að vera á toppnum"
Nánar er rætt við Davíð í viðtalinu sem fylgir.






















