Landsliðsþjálfarastarf Luciano Spalletti hjá Ítalíu er í bráðri hættu eftir slæmt gengi að undanförnu og 3-0 tap gegn Noregi í fyrstu umferð undankeppni HM á dögunum.
Ítalir duttu úr leik í 16-liða úrslitum Evrópumótsins 2024 og töpuðu svo gegn Þýskalandi í 8-liða úrslitum Þjóðadeildarinnar á dögunum.
Spalletti mun funda með Gabriele Gravina forseta ítalska fótboltasambandsins á næstu dögum til að ræða um framtíðina.
Ítalskir fjölmiðlar telja vera miklar líkur á því að Spalletti verði rekinn fyrir HM á næsta ári.
Ítalía á heimaleik við Moldóvu mánudagskvöldið. Allt annað en sannfærandi sigur þar mun tryggja brottrekstur Spalletti.
Athugasemdir