Robinson, Tonali og Iraola orðaðir við Man Utd - White á förum frá Arsenal? - Rudiger og Kolo Muani til Juve?
   lau 07. júní 2025 23:35
Ívan Guðjón Baldursson
Sjáðu stórkostlegt mark FH - Sundurspiluðu Víkinga
Kvenaboltinn
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
FH skoraði fjögur mörk á útivelli gegn Víkingi R. í Bestu deild kvenna í dag og skoraði Thelma Karen Pálmadóttir síðasta mark leiksins.

Lestu um leikinn: Víkingur R. 1 -  4 FH

Þetta er vafalaust eitt af flottari mörkum tímabilsins en ekki útaf afgreiðslunni heldur aðdragandanum að markinu.

FH-ingar spiluðu boltanum frábærlega á milli sín til að komast upp völlinn og koma Thelmu í skotfæri. Þar átti Maya Lauren Hansen magnaða hælsendingu til að leggja upp markið á 93. mínútu.

FH geystist upp völlinn með fimm sendingum þar sem leikmenn Víkings náðu aldrei til boltans áður en Thelma kláraði algjört dauðafæri með marki.



Slapp
Athugasemdir
banner
banner