Newcastle vill Elanga - Liverpool leggur fram nýtt tilboð í Wirtz - Höjlund til Inter?
   lau 07. júní 2025 22:56
Ívan Guðjón Baldursson
Ronaldo: Auðvitað þykir mér vænt um Messi
Mynd: EPA
Cristiano Ronaldo fór víðan völl þegar hann tilkynnti að hann myndi líklegast ekki taka þátt í HM félagsliða.

Hann ræddi meðal annars samband sitt við Lionel Messi og framtíðina sína.

„Auðvitað þykir mér vænt um Leo Messi, við höfum deilt sviðinu í 15 ár. Ég man eftir því þegar ég var túlkur fyrir hann á verðlaunaafhendingum því enskan hans var ekki nægilega góð," sagði Ronaldo. „Hann hefur alltaf sýnt mér virðingu og verið góður við mig."

Ronaldo talaði um að hann yrði líklegast ekki með á HM félagsliða en hann er ekki að hugsa um að leggja skóna á hilluna á næstunni.

„Ég tek einn dag í einu. Ég veit að ég á ekki mörg ár eftir, ég er bara að njóta stundarinnar. Það er ekkert plan að leggja skóna á hilluna. Ég mun halda áfram svo lengi sem mér líður vel."
Athugasemdir
banner