Newcastle vill Elanga - Liverpool leggur fram nýtt tilboð í Wirtz - Höjlund til Inter?
   lau 07. júní 2025 23:46
Ívan Guðjón Baldursson
Fjórir landsliðsmenn Íslands sköruðu framúr
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Enski miðillinn Daily Mail gaf leikmönnum einkunnir eftir æfingalandsleik Íslands í Skotlandi í gær.

Lestu um leikinn: Skotland 1 -  3 Ísland

Strákarnir okkar sigruðu 1-3 á útivelli og fengu flestir leikmenn liðsins 6 í einkunn hjá Daily Mail.

Fjórir leikmenn þóttu standa sig betur og fengu 7 í einkunn.

Þar má nefna markaskorarana Andra Lucas Guðjohnsen og Guðlaug Victor Pálsson, ásamt Elíasi Rafni Ólafssyni og Mikael Agli Ellertssyni.

Albert Guðmundsson og Stefán Teitur Þórðarson, sem áttu báðir góðan leik og gáfu stoðsendingar, fá aðeins 6 fyrir sinn þátt.

Til samanburðar eru aðeins þrír leikmenn skoska landsliðsins sem fá 6 í einkunn en allir aðrir fengu ýmist 4 eða 5.

Andy Robertson fær 4 í einkunn á meðan miðjumennirnir Scott McTominay og Billy Gilmour sem urðu Ítalíumeistarar með Napoli á dögunum fá 5 fyrir sinn þátt. Kieran Tierney var meðal bestu leikmanna liðsins og fær 6 í einkunn.

Ísland: Olafsson 7; Palsson 7 (Thorhallsson 60), Magnusson 6 (Gretarsson 46), Ingason 6 (Gunnarsson 77, 5), Ellertsson 7; Thordarson 6 (Anderson 72), Johanneson 6 (Traustason 72), Haraldsson 6; Gudmundsson 6, Gudjohnsen 7, Thorsteinsson 6 (Willumsson 72).
Athugasemdir
banner
banner