Heimild: Draumaliðið
Simon Tibbling, leikmaður Fram, lék á sínum tíma með Bröndby og varð danskur bikarmeistari með liðinu. Á tíma sínum í Danmörku lék hann með íslenska landsliðsmanninum Hirti Hermannssyni sem spilar í dag með Volos í Grikklandi.
Hjörtur og Tibbling léku 75 leiki saman samkvæmt Transfermarkt og hefur Hjörtur einungis spilað fleiri meistaraflokksleiki með sjö öðrum leikmönnum. Þeir léku saman á árunum 2017-2020.
Vorið 2018 léku Tibbling og Hjörtur saman í úrslitaleik bikarsins þegar Bröndby lagði Silkeborg að velli. Vorið 2021 varð svo Hjörtur danskur meistari með liðinu.
Tibbling er gestur í nýjasta þætti Draumaliðsins hjá Jóhanni Skúla og ræðir sænski miðjumaðurinn um ferilinn til þessa í þættinum. Jói spurði hann út í Hjört.

„Hjörtur gerði vel hjá Bröndby, góður leikmaður. Hann var þar í langan tíma, vann bæði bikarinn og deildina og mun alltaf eiga sérstakan stað í hjarta félagsins. Hann var mjög góður, skilaði sínu og kvartaði ekki, en mér líður eins og hann hefði getað spilað á enn hærra stigi. Hann gerði vel, en samkeppnin var hörð og hann kannski náði ekki þeim takti sem þurfti til að taka næsta skref. Hann fór svo í Seríu B sem er gott skref, en tilfinningin er að hann hefði getað tekið enn stærra skref miðað við hvað mér fannst búa í honum," sagði Tibbling. Hægt er að hlusta á þáttinn í spilaranum neðst.
Hjörtur var hjá Bröndby frá 2016-2021 og lék samkvæmt Transfermarkt 157 leiki með danska liðinu og skoraði fjögur mörk. Hann var ekki alltaf fastamaður í liðinu en spilaði þó yfirleitt meirihluta leikjanna, ef frá er talið tímabilið 2018/19. Hann hefur á ferlinum spilað með Fylki, yngri liðum PSV, Gautaborg, Bröndby, Pisa, Carrarese og Volos. Hann er fæddur 1995 og á að baki 29 A-landsleiki.