Liverpool sýnir Senesi áhuga - Napoli kaupir Höjlund - Ensk félög sýna Conceicao áhuga
   mið 06. maí 2026 13:13
Kári Snorrason
Þrumuræða Óskars í hálfleik: Kremja þá eins og fokking skordýr
Óskar fagnar hér öðru marki KR gegn Val um síðustu helgi.
Óskar fagnar hér öðru marki KR gegn Val um síðustu helgi.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
KR er með fullt hús stiga eftir fimm umferðir.
KR er með fullt hús stiga eftir fimm umferðir.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
KR vann sannfærandi sigur á Val á Hlíðarenda síðastliðinn laugardag. Leikar enduðu 4-1 en staðan var 2-0 fyrir Vesturbæingum í hálfleik.

KR hefur nú birt myndskeið á samfélagsmiðlum sínum af þrumuræðu Óskars Hrafns Þorvaldssonar í hálfleik á Hlíðarenda.

Lestu um leikinn: Valur 1 -  4 KR

„Það eru 45 mínútur eftir. Við þurfum að halda þeim í sömu spennitreyju og við höfum gert hingað til. Ekki halda að þetta sé komið, mér finnst við nánast vera á hálfri ferð. Mér finnst við eiga helling inni.

Við þurfum að skrúfa upp tempóið og keyra endanlega yfir þá, klára þá, kremja þá eins og fokking skordýr undir sólanum á ykkur. Það gerist bara með sömu skuldbindingu, sama framlagi, hjarta, hreinum haus og hugrekki. Pressan er búin að vera geggjuð, varnarleikurinn 99,5% geggjaður.

Sóknarleikurinn - mér finnst við eiga mikið inni með því að taka færri snertingar. Keyrum á þá og klárum þennan leik,“
sagði Óskar að lokum.

Myndbandið er hægt að sjá hér að neðan.


Óskar Hrafn: Þú hefur margt fyrir þér í því
Slapp
banner
banner