Liverpool sýnir Senesi áhuga - Napoli kaupir Höjlund - Ensk félög sýna Conceicao áhuga
   mið 06. maí 2026 16:30
Kári Snorrason
„Gerði mér ekki grein fyrir því hvað það skipti mig miklu máli“
„Ég get ekki beðið eftir að spila með strákunum aftur.“
„Ég get ekki beðið eftir að spila með strákunum aftur.“
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sigurvin Ólafsson.
Sigurvin Ólafsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Kári Kristjánsson er kominn aftur heim í Þrótt eftir stutta dvöl hjá FH. Miðjumaðurinn var seldur aftur í Laugardalinn aðeins fimm mánuðum eftir að Fimleikafélagið keypti hann frá Þrótti, en hann fékk takmörkuð tækifæri hjá FH í upphafi tímabils.

Fótbolti.net ræddi við Kára um endurkomuna í Þrótt og möguleika liðsins í Lengjudeildinni í sumar.

Kom aldrei neitt annað til greina
„Það var ekkert annað sem kom til greina en að fara heim í Þrótt. Ég hefði auðvitað samþykkt lán ef það væri eina leiðin til að losna en ég held þetta sé betri lausn fyrir alla eins og staðan er núna.

Fólkið í Þrótti skiptir mig miklu máli og ég gerði mér kannski ekki alveg grein fyrir því hversu mikið það skiptir mig máli að Þrótti gangi vel fyrr en bikarinn hjá þeim byrjaði í apríl.“


Getur ekki beðið
Kári var spurður hvað Þróttur þyrfti að gera til að taka næsta skref í sumar eftir vonbrigðin í fyrra.

Liðið endaði þá í þriðja sæti Lengjudeildarinnar eftir tap gegn Þór í hreinum úrslitaleik í lokaumferðinni og féll svo úr leik gegn HK í undanúrslitum umspilsins.

Síðan þá hefur Þróttur styrkt sig með stórum nöfnum á borð við Sigurð Egil Lárusson, Adam Örn Róbertsson, Aron Dag Birnuson, Tryggva Snæ Geirsson og nú síðast Magnús Inga Þórðarson.

„Ég held aðalmálið sé að þora að vera við sjálfir í öllum leikjunum, aldrei láta utanaðkomandi atriði eins og stöðu í leikjum eða í deildinni hafa áhrif á okkur. Heldur njóta þess að ganga í gegnum hæðir og lægðir sem verða á okkar vegi í sumar og bæta okkur með hverjum leiknum.

Ég get ekki beðið eftir að spila með strákunum aftur og njóta þess að spila fyrir framan fólkið mitt í Laugardalnum. Ég vona svo innilega að vinir mínir í FH nái sínum markmiðum og fari að tikka inn þeim stigum sem þeir eiga skilið. Þá ættu allir að fara nokkuð sáttir úr þessu máli.“

Slapp
banner
banner