Það var íslendingaslagur í sænsku deildinni í dag þegar Hacken fékk Djurgarden í heimsókn. Fanney Inga Birkisdóttir og Thelma Karen Pálmadóttir voru í byrjunarliði Hacken og María Catharina Ólafsdóttir Gros var í byrjunarliði Djurgarden.
Hacken fór með 3-0 sigur af hólmi og situr í 3. sæti deildarinnar með níu stig eftir þrjár umferðir. Djurgarden er með fjögur stig og hefur spilað einum leik meira.
Guðrún Arnardóttir var ekki með Hammarby vegna meiðsla þegar liðið vann Uppsala 3-0. Hammarby er í 2. sæti með þrjú stig eftir þrjár umferðir.
Glódís Perla Viggósdóttir spilaði seinni hálfleikinn hjá Bayern í 1-1 jafntefli liðsins gegn Hoffenheim í þýsku deildinni. Liðið hefur þegar tryggt sér þýska titilinn en liðið er með 16 stiga forystu á Wolfsburg þegar tvær umferðir eru eftir.



