Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 10. janúar 2019 15:44
Fótbolti.net
Nýr leiktími á leik Breiðabliks og ÍBV
Kolbeinn í leik með meistaraflokki ÍBV gegn KR í Lengjubikarnum árið 2007.
Kolbeinn í leik með meistaraflokki ÍBV gegn KR í Lengjubikarnum árið 2007.
Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson
Vegna jarðafarar Kolbeins Aron Arnarsonar hefur leikur Breiðabliks og ÍBV í Fótbolta.net mótinu verður færður frá laugardegi yfir á sunnudag.

Nýr leiktími er klukkan 14:15 í Fífunni á sunnudag.

Kolbeinn Aron var markvörður handboltaliðs ÍBV en hann var bráðkvaddur í síðasta mánuði og fer jarðarför hans fram í Vestmannaeyjum á laugardag.

Kolbeinn spilaði einnig upp alla yngri flokka ÍBV í fótbolta sem markvörður. Hann lék siðar með meistaraflokki KFS í 3 og 4. deild.

Fótbolti.net sendir ættingjum og vinum Kolbeins dýpstu samúðarkveðjur.
Athugasemdir
banner