Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 11. febrúar 2020 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Courtois leikmaður mánaðarins á Spáni
Thibaut Courtois var öflugur í janúar
Thibaut Courtois var öflugur í janúar
Mynd: Getty Images
Thibaut Courtois, markvörður Real Madrid á Spáni, er leikmaður mánaðarins í spænsku deildinni.

Belgíski leikmaðurinn er fyrsti leikmaður Real Madrid á tímabilinu til að vera valinn leikmaður mánaðarins.

Hann fékk aðeins á sig eitt mark í þremur leikjum í janúar en liðið vann alla leikina.

Courtois er þá fyrsti markvörðurinn til að vera leikmaður mánaðarins síðan Keylor Navas fékk þennan titil með Levante tímabilið 2013-2014.

Það sem vekur enn meiri athygli er að síðasti leikmaður Real Madrid til að vera valinn leikmaður mánaðarins var Cristiano Ronaldo fyrir frammistöðu hans í maí árið 2017.
Athugasemdir
banner
banner
banner