Arsenal á höttunum eftir Williams - Liverpool og Manchester-liðin hafa líka áhuga - Juventus í viðræðum við Aston Villa
   fös 12. júní 2026 07:00
Brynjar Ingi Erluson
„Framtíðarsigurvegari Ballon d'Or“ á leið til Lyon
Mynd: EPA
Belgíski vængmaðurinn Julian Duranville er að ganga í raðir Lyon frá Borussia Dortmund. Sky í Þýskalandi greinir frá.

Vængmaðurinn hefur náð samkomulagi við Lyon um kaup og kjör og eru viðræður milli félaganna hafnar. Búist er við að þær gangi snurðulaust fyrir sig.

Duranville er tvítugur leikmaður sem kom til Dortmund árið 2023 en náði aldrei að festa sig í sessi vegna meiðsla.

Dortmund mun fá 8,5 milljónir evra fyrir Duranville, fimm milljónum minna en félagið greiddi alls fyrir hann.

Félagið mun hins vegar fara fram á háa prósentu af næstu sölu leikmannsins, sem Vincent Kompany sagði eitt sinn vera framtíðarsigurvegara Ballon d'Or-verðlaunanna, er Kompany þjálfaði leikmanninn hjá Anderlecht.

Duranville spilaði aðeins 27 leiki fyrir Dortmund á tveimur og hálfu ári hjá félaginu en hann lék 17 leiki með Basel á láni frá þýska félaginu á nýafstöðnu tímabili.


Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Slapp
banner