Umdeilanlega besti landsliðsmaður sögurnnar, Gylfi Þór Sigurðsson, hefur verið einn allra besti leikmaður Bestu deildarinnar síðustu misseri og er aftur orðinn fastamaður í landsliðshópnum eftir að hafa ekki verið þar á síðasta ári.
Í nýjasta þættinum af Íþróttavikunni kallar Hörður Snævar Jónsson, ritstjóri 433.is, eftir því að landsliðsþjálfarinn Arnar Gunnlaugsson geri Gylfa að byrjunarliðsmanni í landsliðinu.
Í nýjasta þættinum af Íþróttavikunni kallar Hörður Snævar Jónsson, ritstjóri 433.is, eftir því að landsliðsþjálfarinn Arnar Gunnlaugsson geri Gylfa að byrjunarliðsmanni í landsliðinu.
Gylfi kom inn á þegar um tíu mínútur voru eftir af leiknum gegn Argentínu aðfaranótt miðvikudags og skapaði gott færi fyrir Aron Einar Gunnarsson með aukaspyrnu sinni.
„Ég er fastur á þeirri skoðun að Arnar Gunnlaugsson þurfi að gera Gylfa Sigurðsson að byrjunarliðsmanni í þessu liði. Hann er í geggjuðum gír og með þessa hæfileika verður að nota þá. Hann á að vera með Hákoni og Ísaki, stýra svolítið leiknum okkar og láta þá hlaupa fyrir sig," segir Hörður.
„Við erum að taka einn besta mann í sögu ensku úrvalsdeildarinnar í því að taka föst leikatriði, það er ekkert flóknara en það, og í landsliðinu á árum áður var þetta okkar öflugasta vopn; aukaspyrnur og hornspyrnur þegar hann var á boltanum. Ég held að Arnar þurfi að nota haustið í það að finna honum hlutverk og byggja liðið í kringum þessa þrjá á miðsvæðinu. Mér finnst kominn tími á það. Við erum ennþá ungir og villtir, það vantar meiri þekkingu á því hvernig á að sækja úrslit og ég held að Gylfi geti komið með það inn á völlinn fyrir okkur," bætir Hörður við. Í haust spilar Ísland í C-deild Þjóðadeildarinnar.
Gylfi er fæddur 1989 og verður 37 ára í september. Hann á að baki 85 landsleiki og er markahæsti leikmaður í sögu landsliðsins.





