Fotbolti.net
12.06.26 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson

Yfirgefur PSG og líklega á leið aftur heim

Yfirgefur PSG og líklega á leið aftur heim
Canon

Mynd: EPA

Hertz
Enski markvörðurinn Mary Earps er farin frá PSG eftir tveggja ára dvöl en félagið staðfesti þetta með kveðjumyndbandi á samfélagsmiðlum í gær.
Earps er 33 ára gömul en hún var í lykilhlutverki er enska landsliðið vann EM árið 2022 og komst í úrslitaleik HM ári síðar.

Árið 2024 fór hún frá Manchester United og gekk í raðir PSG í Frakklandi.

Þar hafnaði liðið í öðru sæti á fyrsta tímabili hennar og þriðja sæti á síðustu leiktíð.

Samningur hennar rennur út um mánaðamótin og hefur PSG staðfest að hún sé á förum, en samkvæmt Sky Sports er hún á leið aftur heim til Englands. Þar mun hún semja við London City Lionesses.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.