Hugo Broos, þjálfari Suður-Afríku, var bara nokkuð ánægður með leik sinna manna í 2-0 tapinu gegn gestgjöfunum í Mexíkó í opnunarleik HM í kvöld.
Suður-Afríka átti ágæta kafla inn á milli í leiknum en heildarframmistaðan var arfaslök.
Mistök Yaya Sithole sköpuðu fyrsta markið, sem Julian Quinones skoraði eftir níu mínútur, og Raul Jimenez gerði annað markið með skalla um miðjan síðari hálfleikinn.
„Mér fannst liðið mitt spila mjög góðan leik. Mexíkó sýndi örvæntingu á sumum augnablikum leiksins og átti erfitt með að finna plássin. Það eina sem við verðum að bæta fyrir næsta leik er það sem við gerum þegar við erum með boltann. Við vorum ekki nógu góðir í því í dag og þurfum að vinna í því,“ sagði Broos.
Tveir leikmenn Suður-Afríku fengu rauða spjaldið. Sithole sá rautt fyrir að brjóta á Brian Gutierrez sem aftasti maður í byrjun síðari hálfleiks og Themba Zwane fékk annað rauða spjaldið fyrir að slá leikmann Mexíkó seint í leiknum. Broos var ósammála seinna rauða spjaldinu.
„Ég ætla ekki að tala neitt um fyrra rauða spjaldið, en mér fannst Mexíkóinn brjóta á mínum leikmanni í seinna rauða spjaldinu. Dómarinn ákvað hins vegar eitthvað annað.“
„Það er synd að við höfum þurft að klára leikinn með níu leikmenn því þegar þú spilar gegn gestgjöfunum þá áttu eftir að lenda undir pressu.“
„Einu augnablikin þar sem við vorum undir pressu voru á fyrstu tuttugu mínútunum. Eftir það fengum við boltann og spiluðum vel, en við gerðum tvö mistök. Á þessum augnablikum máttu ekki tapa boltanum. Við gerðum það og þá skapaðist pláss fyrir Mexíkó sem þeir nýttu sér með því að skora tvisvar,“ sagði Broos.
Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.
Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.
Kvöldin verða geggjuð í sumar!



