Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   mán 12. ágúst 2019 19:20
Arnar Helgi Magnússon
Rússland: Raggi og Rostov upp í annað sætið
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ragnar Sigurðsson var að sjálfsögðu í hjarta varnarinnar hjá Rostov þegar liðið vann seiglusigur í rússnesku úrvalsdeildinni í kvöld.

Liðið mætti Krylya Sovetov en leiknum lauk með 1-0 sigri Rostov. Sigurmarkið kom eftir rúmlega hálftíma leik en það gerði Eldor Shomurodov.

Björn Bergmann Sigurðarson sat allan tímann á varamannabekk Rostov í leiknum.

Með sigrinum skýst liðið upp í annað sæti deildarinnar, tveimur stigum á eftir toppliði Zenit.

Næsti leikur Rostov er gegn Ufa á sunnudag en Ufa hefur unnið einn leik af fyrstu fimm í deildinni.
Athugasemdir
banner
banner
banner