Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 20. febrúar 2019 09:30
Magnús Már Einarsson
Khedira ekki með í kvöld vegna hjartavandamála
Mynd: Getty Images
Sami Khedira verður ekki með Juventus gegn Atletico Madrid í kvöld vegna hjartavandamála.

Khedira reyndist vera með óreglulegan hjartslátt þegar hann var skoðaður í vikunni.

Khedira hefur undanfarið átt erfiðara með andadrátt auk þess sem hann hefur fundið fyrir svima og þreytu.

Læknar Juventus hafa skoðað miðjumanninn og hann verður ekki með í leiknum á Spáni í kvöld.

Hinn 31 árs Khedira hefur spilað fimmtán leiki á tímabilinu en meiðsli hafa sett strik í reikninginn hjá honum.
Athugasemdir
banner
banner