Axel Tuanzebe er tvítugur varnarmaður Manchester United sem lék fimm leiki á fimm mánaða lánssamning hjá Aston Villa á árinu.
Hann hefur spilað 8 leiki fyrir aðallið Man Utd á ferlinum og á ellefu leiki að baki fyrir yngri landslið Englands.
Tuanzebe komst í heimsmetabók Guinness fyrir að klára borðspilið 'Hungry Hungry Hippo' á rétt rúmlega 17 sekúndum, sem er mettími.
Spilið er gert fyrir 2 til 4 þar sem hver leikmaður stjórnar flóðhesti sem er að borða litlar kúlur. Flóðhesturinn sem borðar flestar kúlur vinnur, en Tuanzebe var að spila einn og kláraði allar kúlurnar.
Athugasemdir