Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 21. september 2022 20:27
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Meistaradeild kvenna: Svava Rós skoraði fyrir Brann - Rosenborg steinlá gegn Real
Svava Rós Guðmundsdóttir
Svava Rós Guðmundsdóttir
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Svava Rós Guðmundsdóttir var í byrjunarliði Brann sem tók á móti Rosengard í undankeppni riðlakeppni Meistaradeildarinnar í kvöld. Guðrún Arnardóttir var í byrjunarliði Rosengard.


Svava skoraði eina mark fyrri hálfleiksins en Rosengard jafnaði metin undir lok leiksins og fer með fína stöðu fyrir síðari leikinn á heimavelli.

Selma Sól Magnúsdóttir var í byrjunarliði Rosenborg sem tók á móti Real Madrid á heimavelli. Þetta var orðið erfitt fyrir Rosenborg í hálfleik en þá var staðan 0-2 fyrir Real.

Real bætti þriðja markinu við strax í upphafi síðari hálfleiks og staðan 3-0 fyrir síðari leikinn á Spáni.

PSG vann Hacken 2-1 í Frakklandi en Berglind Björg Þorvaldsdóttir sat allan tíman á varamannabekknu hjá PSG.

Sigurvegarinn úr hverju einvígi fyrir sig fer í riðlakeppni Meistaradeildarinnar en síðari leikirnir fara fram á miðvikudaginn í næstu viku.


Athugasemdir
banner
banner