Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   mán 22. júlí 2019 08:00
Arnar Helgi Magnússon
Kane: Eitt allra besta mark ferilsins
Mynd: Getty Images
Harry Kane reyndist hetja Tottenham þegar liðið mætti Juventus í International Champions Cup æfingamótinu í Singapúr í gær.

Sigurmark Kane var af dýrari gerðinni en Kane lét þá vaða úr miðjuboganum og Wojciech Szczesny kom engum vörnum við. Sjón er sögu ríkari, markið má sjá hér að neðan.



„Þetta er eitt allra besta mark sem að ég hef skorað á ferlinum," sagði Kane eftir leikinn.

„Ég leit upp og sá að Szczesny var mjög framarlega svo ég ákvað að láta á þetta reyna og í þetta skiptið gekk það upp."

Næsti leikur Tottenham er á fimmtudag en þá mætir liðið Manchester United í sama æfingamóti í Singapúr.
Athugasemdir
banner
banner
banner