Arsenal er með augastað á Morgan Rogers, PSG veitir Liverpool samkeppni um Yan Diomande og Jack Grealish fær tækifæri til að sanna sig á ný hjá Man City. Þetta og margt fleira í slúðurpakka dagsins sem er í boði Powerade.
Arsenal hefur mikinn áhuga á Morgan Rogers (23), framherja Aston Villa og enska landsliðsins. (Talksport)
Aston Villa, AC Milan og Besiktas hafa augastað á Joe Gomez (29), varnarmanni Liverpool. (Mail)
Liverpool og Paris Saint Germain eru í viðræðum við Yan Diomande (19), vængmann RB Leipzig. (Fabrizio Romano)
Roberto De Zerbi, stjóri Tottenham, horfir til þriggja leikmanna frá sínu gamla liði, Brighton. Það eru Carlos Baleba (22), Jan Paul van Hecke (25) og Bart Verbruggen (23). Tottenham horfir jafnframt til John Stones (31). (Independent)
Anthony Gordon (25), vængmaður Newcastle og enska landsliðsins, er ofarlega á óskalista Barcelona og gæti orðið skotmark spænsku meistaranna í sumar. (AS)
Enzo Maresca, sem hefur verið orðaður við Manchester City, vill gefa Jack Grealish (30) tækifæri til að endurvekja feril sinn hjá félaginu eftir lánsdvölina hjá Everton. (Mirror)
Brentford hefur boðið 45 milljónir evra í Said El Mala (19), þýskan vængmann Köln. (Sky Sport Germany)
Sebastiaan Bornauw (27), belgískur miðvörður Leeds, er á lista hjá Köln. (Bild)
Everton vill fá Aaron Wan Bissaka (28), bakvörð West Ham, fyrir um tíu milljónir punda eftir fall West Ham úr ensku úrvalsdeildinni. (Telegraph)
Tottenham, Newcastle, Fulham og Sunderland eru einnig í baráttunni um Wan Bissaka. (Team Talk)
Jose Mourinho, væntanlegur stjóri Real Madrid, hefur lagt fram lista yfir stöður sem hann vill styrkja þegar hann snýr aftur á Bernabeu frá Benfica. (AS)



