Arsenal með augastað á Rogers - PSG veitir Liverpool samkeppni - Grealish fær annað tækifæri hjá City
   mið 27. maí 2026 17:30
Kári Snorrason
Sveindís dettur út úr hópnum - Hrafnhildur kemur inn
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Sveindís Jane Jónsdóttir verður ekki með íslenska landsliðinu í komandi landsleikjum gegn Úkraínu og Spáni í undankeppni HM.

Sveindís hefur verið að glíma við meiðsli en var valin í upprunalega hópinn. Það er núna hins vegar ljóst að hún getur ekki tekið þátt í verkefninu.

Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir hefur verið valin í hennar stað en hún á því möguleika að spila sína fyrstu landsleiki. Hrafnhildur Ása hefur vakið athygli fyrir góða frammistöðu með Breiðabliki í upphafi Bestu deildarinnar.

Ísland mætir Úkraínu í Póllandi þann 5. júní næstkomandi og svo Spáni hér heima nokkrum dögum síðar.


Slapp
banner