Miguel Angel Ramirez hefur verið látinn taka pokann sinn hjá sænska félaginu Malmö.
Ramirez er Spánverji sem tók við stjórnartaumunum hjá Malmö í desember á síðasta ári eftir að Henrik Rydström var rekinn. Hann var þar áður stjóri Real Zaragoza á Spáni.
Ramirez er Spánverji sem tók við stjórnartaumunum hjá Malmö í desember á síðasta ári eftir að Henrik Rydström var rekinn. Hann var þar áður stjóri Real Zaragoza á Spáni.
Ramirez stýrði Malmö einungis í 15 leikjum en aðeins sex þeirra voru sigurleikir.
Arnór Sigurðsson og Daníel Tristan Guðjohnsen eru báðir leikmenn Malmö.


