Arsenal með augastað á Rogers - PSG veitir Liverpool samkeppni - Grealish fær annað tækifæri hjá City
   mið 27. maí 2026 14:00
Enski boltinn
Lið ársins, leikmaður ársins, efnilegastur og sá slakasti
Bruno Fernandes.
Bruno Fernandes.
Mynd: EPA
Sá slakasti.
Sá slakasti.
Mynd: EPA
Í hlaðvarpsþættinum Enski boltinn í vikunni voru ýmsar viðurkenningar veittar fyrir tímabilið sem var að klárast í ensku úrvalsdeildinni.

Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson og Magnús Haukur Harðarson völdu lið ársins í þættinum og er það svona:

David Raya (Arsenal)
Dominik Szoboszlai (Liverpool)
William Saliba (Arsenal)
Gabriel (Arsenal)
Nico O'Reilly (Man City)
Declan Rice (Arsenal)
Granit Xhaka (Sunderland)
Antoine Semenyo (Man City)
Bruno Fernandes (Man Utd)
Morgan Gibbs-White (Nottingham Forest)
Erling Haaland (Man City)

Leikmaður ársins samkvæmt hlaðvarpinu Enski boltinn er Bruno Fernandes sem bætti stoðsendingamet deildarinnar og dró lið Manchester United áfram á herðum sér.

Efnilegasti leikmaður ársins er Nico O'Reilly úr Manchester City sem sló í gegn og verður að öllum líkindum fyrsti kostur Englendinga í stöðu vinstri bakvarðar á HM í sumar.

Slakasti leikmaður ársins er þá Manuel Ugarte úr Manchester United en hann er alveg klárlega á sölulista í sumar eftir skelfilegt tímabil.

Enski boltinn - Verðlaun fyrir tímabilið
Slapp
banner
banner
banner