Ítalska stórliðið AC Milan fundaði í gær með fulltrúum spænska stjórans Andoni Iraola samkvæmt Sky á Ítalíu, en nýr fundur er sagður hafa verið skipulagður eftir fyrstu viðræður við umboðsmenn hans.
Fundurinn fór fram í London og er liður í leit AC Milan að næsta stjóra liðsins.
Iraola hefur undanfarin misseri stýrt enska úrvalsdeildarfélaginu Bournemouth með stórkostlegum árangri. Liðið mun spila í Evrópudeildinni á næstu leiktíð.
Þá kemur fram að AC Milan skoði einnig breytingar í stjórnkerfi sínu, sem sagt þeim aðilum sem munu stjórna fótboltadeild félagsins á bak við tjöldin.




