Arsenal með augastað á Rogers - PSG veitir Liverpool samkeppni - Grealish fær annað tækifæri hjá City
banner
   mið 27. maí 2026 16:00
Kári Snorrason
Söngvar úr stúkunni hafa engin áhrif á Jökul
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Það er mikil pressa á Jökli Elísabetarsyni, þjálfara Stjörnunnar, eftir enn eitt tap liðsins í Bestu deildinni í gær.

Stjarnan tók á móti Víkingi á Samsungvellinum í gærkvöldi og var niðurstaðan 1-3 sigur Víkinga.

Það er búið að leggja mikið í lið Stjörnunnar en árangurinn hefur ekki gengið sem skyldi. Stuðningsmenn liðsins eru ekki sáttir með stöðu mála eins og heyra mátti í stúkunni. Víkingar í stúkunni sungu: „Rekinn á morgun.”

Stjörnumenn ákváðu þá að syngja um sinn eigin þjálfara: „Rekinn í hálfleik.”

Jökull var spurður út í þetta í viðtali eftir leik. „Það hefur engin áhrif á mig. Ég átta mig alveg á því hvernig staðan er og geri mér grein fyrir því hvernig umræðan er,” sagði Jökull.

„Þetta er bara hluti af leiknum. Ég fagna því að stuðningsmenn okkar hafi áhuga á liðinu og fagna því að stuðningsmenn annarra liða hafi áhuga á því að setja orku í að koma okkur úr jafnvægi, og að aðrir nenni að fjalla um okkur,” sagði Jökull að lokum.

Jökull: Stuðningsmennirnir eiga meira skilið
Slapp
banner
banner