Það fóru tveir leikir fram í Bestu deild karla í gærkvöldi en tvö efstu lið deildarinnar unnu þar sigra. Þessir leikir fóru fram í gær þar sem þarna voru lið að spila sem eru síðar í sumar að fara í Evrópukeppni.
Svo virðist sem KR sé með gott tak á nágrönnum sínum í Val þar sem Vesturbæingar unnu annan sigur sinn gegn Valsmönnum á stuttum tíma.
Eins og á Hlíðarenda um daginn, þá keyrðu KR-ingar yfir Val í byrjun leiks. Arnór Ingvi Traustason kom KR á bragðið og Luke Rae bætti við öðru marki stuttu síðar. Staðan var 2-0 í hálfleik fyrir KR en heimamenn hefðu hæglega getað skorað fleiri mörk.
Það mætti annað Valslið út í seinni hálfleikinn og Tryggvi Hrafn Haraldsson minnkaði muninn úr vítaspyrnu stuttu eftir að liðin mættu aftur út úr búningsklefunum. KR stóð hins vegar af sér áhlaup Vals og Eiður Gauti Sæbjörnsson gerði þriðja mark KR um miðbik seinni hálfleiks.
Lokatölur 3-1 fyrir KR sem er með 22 stig í öðru sæti deildarinnar. Valur er í fimmta sætinu með 15 stig. Á toppnum hins vegar er Víkingur sem er með fimm stigum meira en KR eftir 1-3 sigur gegn Stjörnunni í Garðabæ í gær.
Víkingar voru sterkari aðilinn í leiknum og fóru heim með sanngjörn þrjú stig. Valdimar Þór Ingimundarson nældi í vítaspyrnu fyrir Víkinga í fyrri hálfleik sem Gylfi Þór Sigurðsson skoraði af öryggi úr og bætti Óskar Borgþórsson við öðru marki fyrir hlé.
Damil Dankerlui minnkaði muninn fyrir Stjörnuna en þeir komust ekki lengra því Víkinga skoruðu þriðja mark sitt stuttu síðar, Valdimar Þór með það. Víkingar stjórnuðu ferðinni og sigldu sigrinum þægilega heim.
Víkingar eru enn taplausir en Stjörnumenn hafa ekki unnið leik frá því í annarri umferð deildarinnar. Það er gríðarleg pressa á Stjörnumönnum og hvað þá helst þjálfaranum, Jökli Elísabetarsyni.


