„Ég er grautfúll með frammistöðuna í fyrri hálfleik,” sagði Hermann Hreiðarsson, þjálfari Vals, eftir 3-1 tap gegn KR í Bestu deildinni í gær.
Lestu um leikinn: KR 3 - 1 Valur
„Í seinni hálfleik var þetta leikur. Í stöðunni 2-1 fáum við færi og hefðum getað gert þetta að ansi skemmtilegum leik. Frammistaðan í fyrri hálfleik, það vantaði margt upp á þar.”
Valsmenn voru undir í fyrri hálfleik og sérstaklega fyrstu tíu mínúturnar þar sem KR skoraði tvisvar.
„Engan veginn,” sagði Hermann spurður að því hvort þessi byrjun væri boðleg. „Við spilum þetta upp í hendurnar á þeim. Það var engan veginn nógu gott.”
„Uppleggið skiptir engu máli ef menn eru ekki á tánum og vinna ekki slagsmálin. Við vorum skrefinu á eftir og vorum ekki sterkir. Við vorum bara ekki með og uppleggið skipti ekki neinu máli.”
Allt viðtalið er í spilaranum hér að ofan.






















