„Þetta var erfiður leikur og öflugur andstæðingur,” sagði Jökull Elísabetarson, þjálfari Stjörnunnar, eftir 1-3 tap gegn Víkingi í gærkvöldi.
Lestu um leikinn: Stjarnan 1 - 3 Víkingur R.
„Heilt yfir fannst mér þeir sterkari aðilinn í dag. Ég er mjög ánægður hvernig við komum út í seinni hálfleikinn. Svo taka þeir yfir aftur. Það er ekkert óeðlilegt á móti sterkum andstæðing.”
Stjarnan er í miklu basli og hefur ekki unnið í deildinni síðan í 2. umferð deildarinnar.
„Við þurfum að halda áfram og það þarf að vera trú. Það þarf að passa upp á sjálfstraustið. Við þurfum að halda áfram að vinna í því sem við erum að vinna í. Það mun líka hjálpa að fá leikmenn til baka úr meiðslum og fá meiri breidd. Það er sitt lítið af hverju sem hægt er að gera.”
Óttast þú um stöðu þína?
„Ég óttast ekki neitt. Ég er ekki hræddur við eitt né neitt. Ég hins vegar hef mikinn áhuga á að þessu liði gangi vel og stuðningsmennirnir eiga meira skilið. Þeir fjölmenna enn á leiki og ég held að við sjáum okkur fara að borga þeim til baka í næstu leikjum.”
Allt viðtalið er í spilaranum hér að ofan.
























