Keflvíkingar hafa fengið slóvenska miðjumanninn Denis Selimovic á reynslu en hann mun æfa með liðinu næstu daga.
Þessi 33 ára gamli leikmaður hefur lengst af á ferlinum leikið í heimalandi sínu en hann var síðast á mála hjá NK Interblock Ljubljana.
Þessi 33 ára gamli leikmaður hefur lengst af á ferlinum leikið í heimalandi sínu en hann var síðast á mála hjá NK Interblock Ljubljana.
Frá 2007 til 2009 lék Denis með Álasund í Noregi en þar lék hann meðal annars með Haraldi Frey Guðmundssyni varnarmanni Keflvíkinga.
Keflvíkingar eru í æfingabúðum á Vík í Mýrdal og Denis mun æfa með liðinu þar áður en kemur í ljós hvort að samið verði við hann.
,,Hann lítur vel út en þetta kemur í ljós. Við erum ekki búnir að taka neina ákvörðun," sagði Zoran Daníel Ljubicic þjálfari Keflvíkinga við Fótbolta.net í dag.
Keflvíkingar fengu fyrr í vetur slóvenska varnarmanninn Gregor Mohar til liðs við sig. Á dögunum áttu Keflvíkingar einnig í viðræðum við slóvenska miðjumanninn Nejc Kolman en ekkert varð af samningum þar sem hann losnar ekki frá spænska félaginu Racing Ferrol fyrr en í lok maí.
Athugasemdir