Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   mán 21. janúar 2019 07:30
Ívan Guðjón Baldursson
Aubameyang vill spila uppi á topp með Lacazette
Mynd: Getty Images
Pierre-Emerick Aubameyang var ánægður með 2-0 sigur Arsenal í erkifjendaslagnum gegn Chelsea um helgina.

Aubameyang var Í byrjunarliði Arsenal ásamt góðvini sínum Alexandre Lacazette, en þetta er í eitt af fáum skiptunum sem þeir félagarnir fá að byrja saman uppi á topp. Þeir hafa oft byrjað inná saman en annar þeirra hefur þá ýmist verið á kantinum eða í holunni.

„Mér fannst þetta frábært, við vorum alltaf á hreyfingu og lögðum mikla vinnu á okkur fyrir liðið. Okkur líður vel þegar við spilum saman því við erum með góða tengingu," sagði Aubameyang eftir sigurinn.

„Við náum mjög vel saman og ég vona að við fáum að spila fleiri leiki saman uppi á topp.

„Frá því að ég gekk til liðs við Arsenal höfum við verið bestu mátar. Okkur semur ótrúlega vel saman og það er mikilvægt."


Næsti leikur Arsenal er heimaleikur gegn Manchester United í bikarnum næsta föstudag. Á þriðjudaginn er svo heimaleikur gegn fallbaráttuliði Cardiff í úrvalsdeildinni.
Athugasemdir
banner
banner
banner