Garth Crooks, sérfræðingur BBC, er búinn að henda upp úrvalsliði helgarinnar í ensku úrvalsdeildini. Manchester City vann 8-0 sigur gegn Watford en er þó áfram fimm stigum á eftir Liverpool sem vann sigur gegn Chelsea.
Markvörður: Adrian (Liverpool) - Spænski markvörðurinn aðstoðaði Liverpool að vinna Chelsea. Sérstaklega var frammistaða hans í fyrri hálfleik öflug.
Varnarmaður: Ricardo Pereira (Leicester) - Bakvörðurinn sókndjarfi skoraði í sigri Leicester gegn Tottenham.
Varnarmaður: r), Nathan Ake (Bournemouth) - Hollendingurinn skoraði með skalla eftir hornspyrnu í sigri gegn Southampton.
Varnarmaður: Fabian Schar (Newcastle) - Bjargaði á línu á ævintýralegan hátt í 0-0 jafntefli gegn Brighton.
Miðjumaður: Mark Noble (West Ham) - Hrikalega mikilvægur á miðju West Ham í sigri gegn Manchester United.
Athugasemdir