Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 18. október 2019 20:45
Ívan Guðjón Baldursson
Championship: Cardiff bjargaði stigi á heimavelli
Mynd: Getty Images
Cardiff 1 - 1 Sheffield Wed.
0-1 Julian Borner ('19)
1-1 Lee Tomlin ('87)

Þýski miðjumaðurinn Julian Borner gerði eina mark fyrri hálfleiksins er Sheffield Wednesday heimsótti Cardiff City í fyrsta leik helgarinnar í Championship deildinni.

Heimamenn voru arfaslakir í fyrri hálfleik en tóku við sér eftir leikhlé og komust nokkrum sinnum nálægt því að jafna.

Þegar allt stefndi í tap á heimavelli náði Lee Tomlin að pota inn jöfnunarmarki á 87. mínútu.

Cardiff er um miðja deild með 17 stig eftir 12 umferðir, þremur stigum eftir Sheffield.
Athugasemdir
banner
banner
banner