Hvort myndir þú vilja hafa hinn spænska David Raya, markvörð Arsenal, eða Matvey Safanov, markvörð París Saint-Germain, milli stanganna í þínu liði? Þegar stórt er spurt er oft fátt um svör, en líklega ekki að þessu sinni.
Englandsmeistarar Arsenal og Frakklandsmeistarar PSG mætast í kvöld á Ferenc Puskás-vellinum í Ungverjalandi í stærsta leik knattspyrnutímabilsins, úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu.
Ef allt er eðlilegt munu Raya, þrítugur Spánverji, og Safonov, 27 ára Rússi, standa vaktina í sitthvoru markinu. Báðir hafa þurft að hafa fyrir því að vera þar sem þeir eru í dag.
Bestur í heimi?
Spánverjinn er á sínu þriðja tímabili eftir að koma fyrst til Arsenal á láni frá Brentford. Þrátt fyrir að vera fæddur á Spáni gekk Raya ungur að árum til liðs við Blackburn Rovers. Það verður að telja sérstaklega merkilegt að Raya hafi endað á Englandi þar sem hann er aðeins 1.83 metri á hæð.
Raya var á mála hjá Blackburn frá 2014 til 2019 og spilaði yfir 100 leiki fyrir liðið, þá lék hann með Southport á láni hluta tímabilsins 2014-15. Það var svo árið 2019 sem Raya gengur til liðs við Brentford. Þar kynnist hann markmannsþjálfaranum og samlanda sínum Iñaki Caña en þeir starfa í dag saman hjá Arsenal.
Án þess að gefa markmannsþjálfaranum allan heiðurinn þá er deginum ljósara að Raya væri ekki þar sem hann er í dag ef ekki væri fyrir Caña. Síðan hann gekk í raðir Arsenal hefur Raya svo verið með betri markvörðum heims og ef hann stendur uppi sem sigurvegari í kvöld má færa mjög góð rök fyrir því að hann sé bestur í heimi. Hvort það sé nóg til að hirða byrjunarliðssætið hjá Spáni á HM er svo önnur saga en til þessa hefur Raya aðeins spilað 12 A-landsleiki.
Toppar alla tölfræði
Ef leið Arsenal í úrslitaleikinn er skoðuð er ákveðið þema sem kemur fyrir aftur og aftur, liðið fær varla á sig mark. Í 13 leikjum til þessa með Raya í markinu hafa Skytturnar aðeins fengið á sig fjögur (!) mörk. Þá hefur engu liði tekist að skora meira en eitt mark í leik. Það þýðir að níu (!) sinnum hefur Raya haldið marki sínu hreinu í Meistaradeildinni.
Liðin fjögur sem hefur tekist að þenja netmöskvana á marki Raya eru Bayern München, Inter, Bayer Leverkusen og Atlético Madríd.
Það segir sitt um varnarleik Arsenal að Raya er í 10. sæti þegar kemur að flestum skotum vörðum í Meistaradeildinni í ár. Alls hefur sá spænski varið 34 skot eða 89.2% allra skota sem hafa ratað á markið. Samkvæmt FotMob hefur Raya svo komið í veg fyrir flest mörk allra markvarða í keppninni til þessa eða 4.6 talsins.
Takist honum að bæta við þá tölfræði í kvöld eiga Skytturnar bullandi möguleika gegn ríkjandi Evrópumeisturunum frá París.
Rússinn Ódrepandi
Matvey Yevgenyevich Safonov, eins og hann heitir fullu nafni, gekk í raðir stórliðs PSG sumarið 2024. Líklega var hann hugsaður sem varaskeifa fyrir hinn risavaxna Gianluigi Donnarumma en Rússinn var ekki á sama máli. Þó Safonov sé á engan hátt sami skrokkur og Ítalinn þá munar aðeins fjórum sentímetrum á þeim félögum. Rússinn er 1.92 metri á hæð meðan Donnarumma er 1.96. Það er ef við treystum öllu sem við lesum á netinu.
Á sínu fyrsta tímabili í Frakklandi lék Safonov tíu leiki í deild og tvo í Meistaradeild. Síðasta sumar gerðist svo hið ótrúlega, PSG ákvað að selja Donnarumma og festa kaup á Lucas Chevalier, markverði Lille. Átti sá síðarnefndi að verða aðalmarkvörður félagsins en aftur þá var Safonov hreinlega ekki á sama máli.
Hann hóf tímabilið vissulega á bekknum en fékk svo tækifærið í desember. Náði hann að spila tvo deildarleiki áður en hann meiddist á hendi og missti af næstu þremur. Luis Enrique, þjálfari liðsins, hafði hins vegar séð nóg og setti Rússann rakleiðis aftur í byrjunarliðið þegar hann var leikfær á nýjan leik. Þar hefur Safonov verið nær allar götur síðan ef frá eru taldir deildarleikirnir sem spilaðir voru sitthvoru megin við síðari leikinn gegn Bayern í undanúrslitum.
Allt í lagi ekki gott
Þó Safonov hafi varið einu skoti meira en Raya í keppninni, þrátt fyrir að spila þremur leikjum minna, þá er önnur tölfræði hans langt í frá í sama klassa og hjá þeim spænska.
Í þeim 10 leikjum sem Safonov hefur spilað hefur hann haldið fjórum sinnum hreinu og varið 35 skot. Þá hefur hann aðeins komið í veg fyrir 0.7 mörk. Það er þó skömminni skárra en Chevalier sem fékk á sig 1.8 marki meira en eðlilegt er í þeim sex leikjum sem hann tók þátt í.
Þrátt fyrir hæðarmuninn, og tölfræði muninn, má segja að bæði Raya og Safonov séu góðir í sömu hlutunum þegar kemur að markvörslu. Báðir eru leiftursnöggir á línunni, hafa gert það að listgrein að verja skot af stuttu færi og kunna að velju réttu augnablikin til að koma af línunni og gera árás á fyrirgjafir.
Ári eftir að horfa á Donnarumma gera sitt til að tryggja PSG eftirsóttasta titilinn af þeim öllum, allavega með félagsliði, fær Safonov tækifæri til að gera slíkt hið sama. Hvort hann grípi gæsina kemur í ljós í Ungverjalandi í kvöld.
Runólfur Trausti Þórhallsson er menntaður markmannsþjálfari og mun birta vikulega pistla tengda markvörslu. Allt frá Bestu deildum karla og kvenna yfir til Meistaradeildar Evrópu.

