Bjarki Björn Gunnarsson átti stórleik fyrir ÍBV í 6-1 stórsigrinum á Keflavík í Vestmannaeyjum í dag, en hann lagði upp fjögur mörk í leiknum.
Lestu um leikinn: ÍBV 6 - 1 Keflavík
Eyjamenn hafa lengi beðið eftir fyrsta sigrinum og var því enn sætara að gera það með því að blása til veislu.
„Langþráður sigur. Þetta var einhvern veginn „do or die“ (upp á líf og dauða) fyrir okkur. Keflavík nýliðar, jafn leikur fyrirfram og risastórt að ná í fyrstu þrjú stigin og vonandi koma sér í gang,“ sagði Bjarki við Fótbolta.net.
Hann lagði upp fjögur mörk og var maður leiksins að mati Fótbolta.net.
„Maður er auðvitað sáttur við það. Yfir heildina var þetta kannski ekki besti leikurinn en sendingarnar voru að rata á rétta staði og risastórt að fá Omar inn í lokin og koma honum á blað.“
Hann segir það vera frábært fyrir ÍBV að fá Omar Sowe til baka eftir erfið meiðsli.
„Hrikalegt boost fyrir liðið að fá hann til baka og Hermann Þór vonandi bráðum að koma til baka úr meiðslum eftir landsleikjahlé. Við höfum áfram trú á þessu og áfram gakk núna. Ég er mjög bjartsýnn á framhaldið.“
Bjarki hefði helst viljað spila strax í næstu viku og halda skriðþunganum, en liðið þarf að bíða í tvær vikur eftir næsta leik út af landsleikjapásunni.
„Jú, auðvitað. Halda skriðþunganum áfram en kannski fínt að gefa Omari, Hemma og þessum strákum sem eru að koma til baka smá tíma og mæta enn gíraðri í næsta leik gegn Þórsurum úti,“ sagði hann ennfremur.
Viðtalið má sjá hér fyrir ofan.























