Leao fáanlegur á lægra verði - Bernardo bíður eftir Barcelona - Framherji Frankfurt eftirsóttur
   lau 30. maí 2026 10:25
Elvar Geir Magnússon
66% spá sigri PSG gegn Arsenal
Stuðningsmenn Arsenal í Búdapest.
Stuðningsmenn Arsenal í Búdapest.
Mynd: EPA
Í dag fer fram úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu í Búdapest. Það er nýr leiktími miðað við síðustu ár þar sem flautað verður til leiks klukkan 16:00 að íslenskum tíma.

Ríkjandi meistarar Paris Saint-Germain mæta Englandsmeisturum Arsenal í úrslitaleiknum.

Lesendur Fótbolta.net spá PSG sigri en 66% sem tóku þátt í könnun á forsíðu telja að Frakklandsmeistararnir lyfti bikarnum með stóru eyrun annað árið í röð.

Hverjir vinna Meistaradeildina?
66% PSG (1234)
34% Arsenal (631)
Slapp
banner
banner