Rafael Leao er áfram orðaður við Manchester United, Bernardo Silva skoðar nokkur tilboð og framherji Eintracht Frankfurt er eftirsóttur. Þetta og meira til í Powerade-slúðurpakka dagsins.
Rafael Leao (26), vængmaður AC Milan og portúgalska landsliðsins, er á óskalista Manchester United í sumar, en Milan mun skera niður af verðmiðanum eftir að liðinu mistókst að komast í Meistaradeildina. (Football Insider)
Miðjumaðurinn Bernardo Silva (31) er fáanlegur á frjálsri sölu í sumar en hann mun yfirgefa Manchester City í næsta mánuði. Atlético Madríd og Benfica hafa boðið honum samning, en Bernardo vill þó frekar fara til Barcelona. (Times)
Jean-Matteo Bahoya (21), framherji Eintracht Frankfurt, er á óskalista liða í ensku úrvalsdeildinni, en félög frá öðrum löndum í Evrópu og Sádi-Arabíu eru einnig áhugasöm um franska U21 árs landsliðsmanninn. (Sky Sports)
Þýski þjálfarinn Dino Toppmoller, sem yfirgaf Frankfurt í janúar, er einn af líklegustu þjálfurunum til að taka við af Oliver Glasner hjá Crystal Palace. (Sky Sports)
Aston Villa er í viðræðum við hollenska miðjumanninn Lamare Bogarde (22) um nýjan samning. (Football Insider)
Andoni Iraola, fyrrum stjóri Bournemouth, er í viðræðum við Bayer Leverkusen í Þýskalandi. (Times)
Barcelona og Bayern München hafa áhuga á Josko Gvardiol (25), varnarmanni Manchester City. (Goal)
Atlético Madríd er að undirbúa tilboð í Tijjani Reijnders (27), miðjumann Manchester City og hollenska landsliðsins. Hann gekk í raðir Man City frá AC Milan á síðasta ári. (Daily Mail)


