Leao fáanlegur á lægra verði - Bernardo bíður eftir Barcelona - Framherji Frankfurt eftirsóttur
   lau 30. maí 2026 11:49
Brynjar Ingi Erluson
Iraola líklegastur til að taka við af Slot
Mynd: EPA
Spænski stjórinn Andoni Iraola er lang líklegastur til að taka við enska úrvalsdeildarliðinu Liverpool. Þetta segja allir helstu veðbankar og fjölmiðlamenn Bretlandseyja.

Liverpool sendi frá sér yfirlýsingu í dag þar sem félagið staðfesti brottför Arne Slot.

Hann gerði Liverpool eftirminnilega að Englandsmeisturum á síðasta ári en frammistaðan á þessu tímabili var afleit og átti félagið ekki annarra kosta völ en að láta hann fara.

Samband hans við leikmenn var orðið verulega stirrt og ljóst að hann hafði misst klefann. Liverpool hefur þegar hafið leit að arftaka hans og er Andoni Iraola sagður líklegastur til að taka við keflinu.

Iraola gerði frábæra hluti á þremur árum sínum hjá Bournemouth og tókst að koma liðinu í Evrópudeildina fyrir næstu leiktíð.

Hann tilkynnti undir lok tímabilsins að hann myndi ekki framlengja samning sinn við félagið.

Spánverjinn er sagður hafa beðið þolinmóður eftir fréttum af frammistöðuviðtali Slot. Hann hefur átt í viðræðum við Bayer Leverkusen í Þýskalandi en talið er að hann slíti þeim og hefji viðræður við Liverpool.
Slapp
banner