Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 01. október 2019 16:30
Elvar Geir Magnússon
Pellegrini frá í tvo mánuði - Mkhitaryan í þrjár vikur
Pellegrini á meiðslalistanum.
Pellegrini á meiðslalistanum.
Mynd: Getty Images
Roma verður án Lorenzo Pellegrini næstu tvo mánuði en miðjumaðurinn þurfti að gangast undir aðgerð.

Hann meiddist í 1-0 sigrinum gegn Lecce síðasta sunnudag.

Þessi 23 ára leikmaður spilar væntanlega ekki aftur fyrr en í desember.

Hann missir af komandi landsleikjaglugga með Ítalíu og deildarleikjunum gegn Napoli og AC Milan.

Þá verður Henrikh Mkhitaryan frá í þrjár vikur. Armeninn kom til Roma í sumar frá Arsenal.

Roma er í fimmta sæti ítölsku A-deildarinnar með 11 stig eftir 6 umferðir.
Athugasemdir
banner
banner
banner